Psalms 1

1Sæll er sá maður, er eigi fer að ráðum óguðlegra, eigi gengur á vegi syndaranna og eigi situr í hópi þeirra, er hafa Guð að háði, 2heldur hefir yndi af lögmáli Drottins og hugleiðir lögmál hans dag og nótt. 3Hann er sem tré, gróðursett hjá rennandi lækjum, er ber ávöxt sinn á réttum tíma, og blöð þess visna ekki. Allt er hann gjörir lánast honum. 4Svo fer eigi hinum óguðlega, heldur sem sáðum, er vindur feykir. 5Þess vegna munu hinir óguðlegu eigi standast í dóminum og syndugir eigi í söfnuði réttlátra. 6Því að Drottinn þekkir veg réttlátra, en vegur óguðlegra endar í vegleysu.
Copyright information for Icelandic